Ég var á leið heim úr vinnu áðan og var á Reykjanesbraut við smárann. Umferðin hreyfðist hægt og rólega áfram á þessum kafla. Fljótlega sá ég ástæðuna. Hvítur, 5 dyra Nissan Sunny, hafði farið í einhverjum fimleikum útaf veginum. Veit ekki alveg hvernig þetta atvikaðist, en það voru þvílík bremsuför á veginum eftir hann. Eitthvað fleira hafði þó komið fyrir, því bílstjórahliðin á bílnum var í mauki.

Mér leikur forvitni á að vita hvað gekk þarna á…