Þá eru að koma 3 bílaþættir í skjá 1.
Það á að koma Mótor, einn geysi óvinsæli þáttur þar sem talað er um hansahólf og eyðslu.

Svo er skjár 1 byrjaður að auglýsa Pimp my ride þættina þar sem þeir breyta algjörum druslum í eins hnakkabíla bíla og hægt er, setja 20" króm TV og allt sem hugurinn girnist, mjög skemmtilegt s.s

Svo hefur heyrst að skjár 1 sé búinn að fjárfesta í top gear þáttunum og ég hef ekki hugmynd um hvenær þeir byrja að sýna þá en það eru þættir sem vert er að horfa á, þar reynsluaka þeir bílum sem maður lætur sig ekki einu sinni dreyma um að eignast, (Ferrari, Porsche, Zonda, Lambo og allt þetta) þeir gera annað en þeir í mótor, því þeir hika ekki við að spóla í hringi eða fara í race :D

Jæja þá vitiði það…