Þetta er ´88 módelið af E34 535i beinskiptum, eintak í rosalega góðu standi og ekinn rétt yfir 125þús km.

Hann kom til landsins fyrir um 4 mánuðum síðan.
Fyrri eigendur eru ekki margir, og undan mér er það sá sem flutti hann innog átti hann bara í nokkra daga svo er það gamall kall sem notaði hann til að komast í og úr vinnu í austur þýskalandi,
þar á undan var það krimmi sem sat voða mikið inni og gat þessvegna ekki keirt bílinn neitt :)

Þegar hann kom til landsins var nýr vatnskassi í honum, bíllinn er samt tjónlaus ef einhver var að velta því fyrir sér
(vatnskassinn hefur trúlega farið útaf ventli sem átti það til að virka ekki í fyrstu modelunum af þessum bíl.. búið að gera við það allavega) og í honum eru líka nýir demparar að framan.

Helsti búnaður er:
Leður sæti
Rafmagn í sætum
Minni í sætum
Hiti í sætum
ABS bremsur
ASC Spólvörn
LSD (Læst drif)
10 diska cd magasín
Gott sony útvarp með kassettu og stórum magnara
Stóra aksturstölvan
Check control
Cruise control
Hreinsi búnaður á aðal og þokuljós
Þokuljós í svuntu
17”felgur á góðum sumardekkjum
15”felgur á svo til nýjum vetrardekkjum
Höfuðpúðar að aftan
Sólgardína í afturglugga
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speiglar
Samlæsingar
Leður sportstýri
Upphitaðir speiglar
Afþíðing á læsingum
Upphitaðir rúðupissstútar
Svo getur auðvita vel verið að ég sé að gleima einhverju sniðugu ;)


Bíllinn fer af númerum og í geimslu trúlega í þessum eða næsta mánuði þannig að gott væri ef áhugasamir hefðu samband í fyrra lagi
uppá að geta prufað bílinn því ekki vil ég selja bíl sem kaupandi getur ekki mátað sig almenilega í áður.

Hann er alger draumur í akstri og þrusu virkar. 211 Hestöfl og 305 Newton koma þessum 1500 kg bíl rosalega úr sporinu,
svínliggur í beygjum og sportstólarnir halda vel við mann. Vél, drif og gírkassi í topplagi og vottar ekki fyrir oliusmiti eða neinu þessháttar neinstaðar.


Verðið er 800.000 með öllum felgum og dekkjum.
Ég skoða skipti á ódýrari bílum og þá allra helst BMW
En auðvita er ég opinn fyrir öllum gáfulegum tilboðum og endilega hafið samband ef þið hafið einhverjar spurningar

Einar Ingi
8204803
einar@toppfilm.is

Myndir og fleiri upplýsingar á