Ég fór niður í ÁG í dag og ætlaði að kaupa hátalara en það var enginn þar. ÉG hefði getað gengið út með helling af dóti bara. Ég var búinn að vera einn þarna í örugglega 10-15 mín þegar einhver starfsmaður kom, en hann gat ekki afgreitt mig heldur tók hann bara niður pöntun og sagðist ætla að hringja þegar varan væri tilbúin á morgun.

Mér finnst þetta vera soldið slöpp þjónusta og þeir þyrftu að passa þetta :P