Sælir hugarar

Þannig er mál með vexti að mig vantar nokkra varahluti í benzann minn, vona að þið getið bent mér á slíka bíla eða gert mér tilboð. Eftirfarandi varahluti vantar:

1.Farþegahurðina í heilu lagi (hún er að farast úr ryði greyið)

2. Farþega og bílstjórasæti lágmark (aftursæti með ef ég þarf að fá þetta allt saman í stíl..má vera leður.)

3. Plaststykki í skottið, það er hlíf aftast í skottinu, bara til að maður sjái eitthvað flottara en járnið þar.

4. ÉG týndi kopp um daginn, ekkert möst að fá hann (sjáið lúkkið á þeim á myndinni)

5. hljóðeinangrunar dótið í húddinu, það er laust og frekar slitið.

6. Drifskaftspúða, og púða í fjöðrunina, verða að vera í 100% lagi…en efast um að fólk eigi þannig.


Kveðja hlynzi…svo fylgir ein mynd ef menn vita ekki hvaða boddý W201 er.



Mercedes Benz 190E W201