Sælir þið þarna snillingar.

Ég var að festa kaup á mínum fyrsta bíl, enginn kaggi svo sem, Peugeot '98 módel. Mér finnst hann ekki líta aaaalveg nógu vel út og er að fara að fá mér filmur í hann. Svo var ég að pæla, langar klikkað í spoiler á hann..hvernig fer ég að? Hvar er hægt að láta gera það og er það geðveikt dýrt eða?

Eitt að lokum, það þyrfti að sprauta hann á nokkrum stöðum, bara bletta nánast.. vantar smá lakk undir hurðinni og aðeins á afturstuðarann. Væri það alveg rosalega dýrt og hvar væri best að gera það?

Þakkir;)