Í sakleysi mínu labbaði ég inn í Bílabúð Benna i fyrrradag, ætlunin var að hjálpa frænda mínum að fikta aðeins í lancer 1993 með 1600 mótor og kaupa þar K&N svepp og bracket til að festa hana í bílinn, þar rek ég augun í þennan gullfallega Porsche Boxster S, sem að ég fór að sýna áhuga, meiri áhuga en Carrera GT bílnum sem að stendur þarna inni þarsem að ég veit að ég hef enganveginn efni á þeim bíl, ég fór að spyrja þennan mann (Jón einsog hann kynnti sig) út í Boxterinn, hann sagði að hann væri notaður, ekinn 4000km, hann sýndi mér bílinn, segist geta slegið hann niður og sýnir mér aukahlutapakka, en sér svo ljósmyndara labba inn… Ég var kominn langleiðina útí að fara að versla bílinn en þá labbar hann í burtu hundsar mig og það var þá sem að mér snérist hugur og ákvað að ganga út… Þessa stundina er maður að velta fyrir sér Nissan 350Z með öllum aukahlutapakkanum… það er jú Concept bíll… frá Nissan, en hverjum er sosum ekki sama… á meðan ég er þjónustaður með virðingu…<br><br><a href="http://www.danasoft.com/sig/Angelic0.jpg">HaX Dauðans ;)</a>
og hver sagði að amma'ín væri mamma pabba þíns ?