Ég sá video um daginn á netinu af bíl sem var að taka 360° á þurru malbiki. Þetta var BMW station bíll , man ekki alveg hvernig týpa. Það sem ég var mjög hissa á var það að þegar gaurinn var að snúa bílnum til baka eftir að hafa snúið honum 180° á góðri ferð, þá lyftist bíllinn upp að aftan og hendist á toppinn og rústast gjörsamlega!!
Þá fór ég að hugsa aðeins um þetta, ég hefi nú haldið að svona bíll myndi þola þetta.
Ég var oft að leika mér að þessu, bara á blautu malbiki… þarf svona 70-80kmh til að klára snúninginn almennilega.

Nú fer ég að fara fá minn kagga úr sprautun og þetta verður eitt af því fyrsta sem ég mun reyna á honum:D
Haldiði ekki að 944 hafi þetta??

…(þetta er mjög gaman, þarf að vera snöggur á stýrinu og gjöfinni;)
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96