Þetta var rauði bíllinn.. hrikalega skítugur, líklega búinn að sitja í geymslu í þónokkurn tíma.
Það vantaði á hann húddið(allan framendann), skottlokið, afturljósið og blæjuna.. veit samt ekki hvernig þetta virkar með afturrúðuna en hún var heldur ekki í. Einnig vantaði einhverja plasthluti í innréttinguna í kringum gírstöngina.
Hann er á ónýtum dekkjum að framan, allavega öðrum megin en annars held ég að það sé hægt að gera þetta upp.
Við hliðina á bílnum sóð einhver útlendingur sem sagðist eiga húddið af honum og það væri til sölu, líklega var það bara skrúfað af til þess að græða pening á, en slíkt húdd kostar 7-800 þúsund nýtt.
Bíllinn fór á sléttar 2 millur á uppboðinu, sem er frekar magnað.<br><br>Got an issue ?
<i>-use a tissue.</i