Já, ég veit að það hefur verið umræða um þetta hér einhvern tíma en þar sem að það mætti alveg hleypa smá lífi í korkana þá datt mér í hug að spyrja hvort ykkur finnist betra, sjálfskiptur eða beinskiptur bíll?

Sjálfum finnst mér skemmtilegra á beinskiptum ef ekki er um að ræða mjög kraftmikinn bíl en hins vegar ef um kraftmikinn bíl er að ræða þá held ég að það sé kannski skemmtilegra að vera á sjálfskiptum(en það kannski fer eftir því hvernig bíll þetta er nákvæmlega).<br><br><font color=“silver”>——-
Zyklus</font
Zyklus