Jæja…

Nú var verið að sýna frá reynsluakstri á bílnum eftir fréttir á stöð 2 og þeir sem horfðu á það vita nú að “Svali” kann ekkert að keyra ! Þetta var sorglegt…
Greinilegt er að einu bílarnir sem hann hefur keyrt eru Hondur, og það framhjóladrifnar, vegna þess að hann kunni ekki að koma áttuni almennilega í slide. (ENDA ER HANN FM HNAKKI Í FYLLSTU MERKINGU, ALVEG FRAM Í FINGURGÓMA!)

En however… Mér líst vel á Mözduna fyrir utan verðið og hversu toglaus vélin er. Svo eyðir þessi fjandi slatta… Frábær bíll en common, næstum því 4 milljónir fyrir Mözdu ! Hahahahhh ! NEVER ! Frekar kaupi ég gulan Scania Strætó með sæti fyrir 50 manns! Hann er allavega ekki Asískur…
Veit ekki um ykkur, en ég er ekki heitur fyrir japönskum sportbílum. Allavega ekki eftir að ég horfði á Porsche 911 Carrera öskra sig út úr götunni hérna heima rétt áðan… Ég er ennþá með gæsahúðina á bakinu… *HROLLUR* ;$

Kveðja Viddi.

“Þú hættir ekki að leika þér af því að þú eldist.”
“Þú eldist vegna þess að þú hættir að leika þér.”

PORSCHE