Fyrst það er komin mynd af þessum bíl þá langar mig til að segja frá mínum kinnum af honum. Þegar ég var ca. 15 ára var eldri bróðir minn með svona bíl til afnota meðan bíllinn hans var í viðgerð. Ég hafði nú ekki mikið álit á þeim en það átti eftir að breytast. Þeir eyddu engu, voru mjög liprir, og enginn óþarfi. Þetta var hrátt ökutæki.

Eitt sinn festi bróðir minn hann í brekku, við fórum út og liftum bílnum til. Eftir smá stund vorum við komnir með bílinn uppá gangstétt að hluta og komumst áfram :)

Ég myndi nú ekki eltast við svona bíl en minningin um hann er góð.

JHG