Það er frekar eftirtektaverður bíll rétt hjá þar sem ég bý, eldrauður á litinn, með huges spoiler sem er reyndar ekki flottur. Þetta er ford sierra, ég vissi það reyndar. En í gær skoðaði ég bílinn þar sem honum var lagt út í kant við eina götuna í hverfinu. Það stendur aftan á bílnum að hann sé breyttur af Cosworth. Ég var að spá hvort þið vissuð eitthvað um svona bíl, er ekki dúndurkraftur í þeim?
Þessi bíll er svo áberandi vel farinn að maður tekur strax eftir honum.
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96