Hæ,

ég er að pæla í því að fá mér bassabox frá pioneer sem heitir TS-WX20LP. Kannast einhver við það hérna? Er það gott? Vitiði hvernig bíla/græjublöð hafa verið að taka því? Það stendur á því 200W og í bæklinginum max 350…er þetta nóg? Framleiðir boxið skemmtilegan hljóm? Ég hlusta á svo margar tónlistar tegundir: hip-hop, rokk, danstónlist, post-rock o.s.frv. Hvernig hljóma mismunandi stefnur í því?

Ég er að pæla í því að fá mér nýjan bíl í sumar og nenni því ekki að skipta um alla hátalara í bílnum. þetta er opel astra. Er eitthvað vit í því að vera með orginal hátalara (stillta á lítinn bassa) og svo bassabox - er hljóðið í lagi?

Vinur minn, sem er geðveikt klár í svona græju dæmi, á ts-wx205 er það betra að einhverju leiti…það er svo lítill verðmunur á milli þeirra þannig að ég var að pæla hvort það væri einhver ákveðin ástæða að hann valdi frekar þetta box? einhverjar hugm.?

takk..
Beer - it's not just for breakfast anymore.