Ég hef nokkrum sinnum tekið eftir furðulegu drasli hendast undan bílum sem ég veit ekki hvað er. Ég tek bara eftir þessu á morgnanna á leið í skólann þegar er dimmt úti. Ég hélt fyrst að einhver hefði hent út vindli og hann skoppað í götuna og glóðið farið út um allt. Svo sá ég þetta aftur undan öðrum bíl í morgun, og það var nýr bíll.
Mér datt í hug að þetta væri eitthvað úr bremsunum, eða úr bremsuborðum eða klossum. Ég hélt það fyrst þegar ég sá þetta undan mözdu gamalli, en í morgun kom svona undan nýlegum subaru. Og ég sá greinilega að þetta kom undan bílnum.
Þetta er greinilega eitthvað glóandi drasl sem spýtist glóð í allar áttir frá þegar það skoppar á götunni!

Dettur ykkur eitthvað í hug hvað þetta getur verið??
Accent ‘95 - Micra 2,0GTi ’96