Það er alltaf hressandi að sjá TopGear teymið taka bíla til kostanna og hér er það Mazda RX-8 sem setur sama brautartíma og M3!

<a href="http://homepage.ntlworld.com/andy.wray/topgear.wmv">http://homepage.ntlworld.com/andy.wray/topgear.wmv</a>

Get ekki sagt annað en mig sé virkilega farið að langa að sjá þennan bíl berum augum miðað við allar myndirnar (hvað þá að taka í hann). Það verður víst einhver bið á því að það verði hér á landi því sölumaður í Ræsi sagði að þeir fengju líkast til ekki bíl fyrr en með vorinu þar sem þeir hefðu ekki tekið marga sportbíla undanfarið (ætli sá síðasti sé ekki MX-5 '02 bíllinn í stæðinu hjá mér :Þ )