Ég verð víst að selja álfelgurnar mínar þar sem að ég er búinn að selja bílinn sem þær voru á :(

Felgurnar voru keyptar nýjar fyrir rétt rúmlega ári síðan, minnir að það hafi verið í ágúst á síðasta ári. Ég notaði þær bara sem sumarfelgur og því eru þær lítið notaðar, nýlegar og mjög vel með farnar - fyrir utan eina felguna…
Ein felgan lenti í smá hnjaski og er örlítið dælduð en er samt ekki skökk samkvæmt mælingu.

Stærðin á felgunum er 16x6.5“ og offsetið er ~40, man það ekki nákvæmlega. Gatadeilingin er 4x144.3.

Á dekkjunum eru nú GoodYear Eagle Touring 215x55 R16 sumardekk. Það er nóg eftir af munstrinu og það er möguleiki að ég selji þau með - annars get ég notað þau undir nýja bílinn minn.
Með felgunum fylgja hins vegar 16stk af ”stilliboltum“, þeas. einhverjum spes felguróm sem amsk. passa á Hondu Accord.

Hérna er mynd af einni felgunni á meðan hún var enn undir 1991 Accordinum mínum:
<a href=”http://212.30.203.97/felga.JPG">http://212.30.203.97/felga.JPG</a>

Þetta eru nokkrar bílategundir sem þær passa undir:
Honda Accord
Honda Prelude
Mitsubishi Galant
Mitsubishi Lancer
Nissan Primera
Nissan Almera
Volvo S40
Volvo V40
Hyundai Coupe
Kia Clarus
Mazda 323 86-89

og svo eru fleiri hér:
<a href="http://home.earthlink.net/~ibdilbert/wheels/wheels.html">http://home.earthlink.net/~ibdilbert/wheels/wheels.html</a>

Endilega sendið mér tilboð hingað í gegnum Hugapóst :) Ég var að vonast til að fá kannski 40.000 fyrir þær án dekkja en er viljugur til að slá svoldið af þar sem ein felgan er skemmd.

Ég skal taka betri myndir af þeim einhvern tíman þegar ég nenni.