Ég hef verið að velta því fyrir mér að breyta bílnum mínum í svona fast and furious bíl. Já eða svipaðan. En vandamálið er að mér finnst þeir vera alltof lágir. Þannig að einhver benti mér á að setja hann á loftpúða þá gæti ég stjórnað hæðinni, hvað bílinn er langt frá jörðinni. En ég fór þá að spá hvort þetta hefði ekki einhver áhrif á aksturseiginleikana og fleira. Og verður bílinn ekki stífari þegar ég hef pumpað í púðana til að gera hann hærri?
Gott væri að fá svör eða upplýsingar um þetta

Kv. Beast1983