Það er ekkert búið að gerast hérna lengi og þess vegna ætla ég að skrifa um draumbílinn minn! Ég ætlast til þess að þið gerið það sama.

Númer 1 er Chevy Corvette Stingray 1969(blæju). Þetta eru flottustu sportbílar fyrr og síðar! En hann ætti að vera svartur með rauðum viper röndum með 17+" álfelgur, rauðar filmur í öllum rúðum. Það áð vera 8 lítra vél með nítró, beinskiptur 6 gíra. Það á líka að vera fjarstart, cruise control og 6 diska spilari. Það eiga líka að vera geðveikar græjur kem með það seinna. Vélin, gírkassinn og púströrin eiga öll að vera krómuð. Hann ætti að vera allur leðraður að innann með rauðu leðri. Það á að vera vínrautt mælaborð og stýri. Allur málmur inni í bílnum á að vera gullhúðaður, hausinn á gírstönginni á að vera hauskúða úr gulli og stöngin glær. Rauð neon ljós innan í bílnum og með rauðu plexí gleri fyrir ljósunum. Það væri gaman að fá sama frá ykkur!