Mikið rosalega varð ég glaður í dag.
Þannig var að ég átti erindi niðri á Gelgjutanga í dag og keyrði í gegnum Vogana til að komast þangað. Og hvað haldið þið að hafi legið í einni götunni eins og ekkert væri eðlilegra, nema Mestmegnis Benz CL55 AMG. Ég verð að segja að þegar maður ber svo fagra og góða bíla augum þá vakna einhverjar tilfinningar sem erfitt er að skilgreina (þið kannist kannski við þetta :-)
Maður hefði kannski átt að bíða eftir eigandanum og hlusta á græjuna.

Saxinn