sá kvenmann á Patrol jeppa áðan. Byrjaði á að keyra í veg fyrir Grand Cherooke jeppa sem kom niður Njarðargötuna. Grandinn negldi niður og Patrolinn bakkaði aftur inn í götuna síðan. Þegar að Grandinn var farinn framhjá fór Patrolinn út á Njarðargötuna og svínaði hrottalega á vínrauðan Avensis sem kom upp Njarðargötuna. Svo allt í einu sveigði Patrolinn yfir á rangan vegarhelming og kom á móti Toyotu leigubíl. Svo stoppaði hann ekki á gangbraut fyrir krökkum en bíllinn úr andstæðri átt hafði stoppað.
Svo hvarf hann en ég er viss um að þessi kona hafi gert fleiri skandala í dag :) passið ykkur!