Ég er í ferlinu að kaupa mér '99 Civic h/b 1600 og ætlaði að athuga hvort einhverjir væru með upplýsingar um það hvernig þessi vél væri að endast?? Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að margir hér á korkinum eru ekki hrifnir af Hondum almennt en ég var líka að velta því fyrir mér hvað má gera til að auka kraftinn í bílnum. Þess skal getið að flækjur og K&N sía eru nú þegar í græjunni, ekki það að sían geri mikið svo sem. Öll hjálp væri vel þegin, svo og almenn skoðun um þessa bíla!?
Takk
Regz