ok ég var smá á rúntinum með afa í æfingaakstri hjá Kringlunni!
Ég var að fara inna á veginn þar sem leikhúsið er og var bara ekki eitthvað að hugsa og sá ekki bíl sem kom frá hægri því að annar bíll skyggði fyrir hann svo ég fór bara inna en slapp….var bara heppinn að hann var ekki á hraðferð!

Ég er á því að það er rosalega gott að lenda alltaf svona næstum því í árekstri því þá getur maður lært á mistökunum sem ég geri…

En mig fynnst þessi hægri réttur oft bara vera til að menn geti náð sér í árekstur!

Maður er oft sofandi!

Ekki var það skárra að amma var afturí!