Fékk smá hugdettu um daginn og ákvað að
henda henni hérna inn upp á djókið…

Haldiði að það væri business í því að stofna
glæsibílaleigu sem myndi leigja út sérstaka
bíla, t.d. gamla ameríska kagga og gamla
sportara og eitthvað svoleiðis, svona bíla
sem alla hefur kannski langað að prófa
og gætu leigt í 1 dag eða til að nota sem
brúðarbíla í brúðkaupum eða bjóða gellum
á deit og svoleiðis?

Þetta yrði auðvitað helvíti dýrt að leigja
svona bíla en ég væri persónulega til í að
leigja einn svona gamlan kagga í einn
dag á 10.000 bara til að prófa.

T.d.
Einn 1959 Cadillac convertible
Einn Jagúar XJS
Einn Porsche 911
o.s.frv…

Bara hugdetta, endilega komið með comment
um þetta eða hugmyndir

Kv.
Gústinn