Þetta eru náttúrulega frábærir bílar, en mér fannst nú aðeins vanta kjöt á beinið í greininni. Coventry Climax hannaði ekki vélina úr einhverri keppnisvél, heldur var þetta vél sem var sérstaklega hönnuð fyrir slökkvidælur. Þess vegna var hún létt en öll mál frekar víð, enda ætlast til að hægt væri að dæla vatni á fullu þótt vélin væri köld. (Ekki það að ég efist um að þú vitir þetta ekki en svona hinum til fróðleiks)