Hefur einhver hérna lent í því að fá hraðasekt í útlöndum? Ég
var tekinn í dag á bílaleigubíl í Kaupmannahöfn, á 82 km
hraða þar sem leyfilegt er að keyra á 50 km hraða. Löggan
sagði að ég fengi rukkun um sektina senda til Íslands og hún
væri 1.500 DKK. Þeir tóku niður heimilisfangið mitt á Íslandi.
Er einhver sem að hefur lent í þessu og veit hvort ég verð
rukkaður?