Svo er mál með vexti að ég keypti mér bjöllu fyrir 15 árum og á hana enn. Hún er árgerð 67, svört að lit með topplúgu og nice. Allavegana þá keypti ég bókina “how to rebuild a volkswagen machine” og tók upp vélina sem gekk bara nokk vel. Nú vil ég halda áfram að gera hana upp og panta varahluti í bjölluna. Einhverra hluta vegna finn ég ekki heimasíðu á netinu með þessa varahluti, en ég veit að þetta á að vera til útum allt. Enn þann dag í dag eru gefin út bjöllublöð og það virðist allt fást í þetta. Hvar er helst möguleiki á að kaupa hluti hér á Íslandi eða þá erlendis (þá á netinu). Ég vil endilega halda þessu djásni við.
Kveðja
Elvar Örn, Akureyri<br><br>Kveðjur
[I'm]Eagle
Kveðjur