Jæja, þar sem ég stefni á Porsche 911 innan níu ára og 944 ennþá fyrr þá skellti ég mér á samkundu hjá Porsche klúbbnum í gær.

Þeir hafa svipaðann hátt á og við og hittast á góðu plani, í þessu tilfelli fyrir framan húsgangahöllina. Það var ágætismæting og þarna komu tveir Porsche 964, einn ameríku 911S (sjötíu og eitthvað módel), tveir 1989 módel af 911, tveir 924 báðir fallegir, einn gullfallegur þriggja lítra 944 og svo tveir 928.

Það voru reyndar fleiri bílar þarna sem ég missti af… jú svo var turbolook pre 89 911 bíll þarna og glænýr Porsche Cayenne sem Benni var á.

Það sem var nú markverðast þarna voru tveir fallegir 1989 módel sem voru óaðfinnalegir, annar rauður og létt tjúnaður skilst mér og svo sans brúnn með póleruðum fuchs felgum ekinn aðeins 60 þúsund!

Svo mætti Benni á þessum Cayenne - þá lá við að ég ældi á planið! Það vantaði bara rappara gallan á Benna! Hann var búin að setja viðbjóðslegar 22“ krómfelgurundir vesalings bílinn! Þvílíkur hryllingur, bíllinn er nú ekki beint fallegur fyrir en að ”pimpa“ hann svona rækilega er hrikalegt finnst mér.

Þetta minnti helst á eimreið frá 19 öldinni að sjá þetta undir bílnum. Það eina góða við þetta var að maður gat skoðað þessar geysi öflugu bremsur sem eru undir þessum bílum

En allavega…. 22” undir Cayenne er bara ógeð!

Hinsvegar sé ég að ég ætti að hafa efni á 911 fyrr en ég gerði ráð fyrir ef ég verð duglegur að spara

Kannski bara innan þriggja ára - en ef það bregst þá fer ég á 944 í millitíðinni.

OG hafið ekki áhyggjur, það verður sko örugglega BMW til að eiga með!