Ég veit ekki hvort ég eigi að pósta þessu hér, það trúa mér sennilega fáir.
Ég á 1993 MMC Galant V6 2.0L ekin 155 þús km.
Ég fyllti hann með V-Power 99+ bensíni hér í RVK og keyrði í Vatnsdal og til baka (483 km), og tankurinn var ekki einu sinni orðin hálfur.
Ég keyrði með cruise control-ið á ala leiðina og var á 100 -110 km hraða (2500 til 2800 snún. á mín.)
Bíllinn eyddi ekki nema 7.13 lítrum á hundraðið, Ótrúlegt.
Ég veit ekki hvursu mikið, en bíllinn eyddi mun meira með 95 okt bensíni.