Tekið af mbl.is..:)

Rómverskur neðanjarðarkappakstursmaður, sem nefndur er El Murena eða állinn, hefur verið handtekinn eftir að hafa svikið fé út úr öðrum ökuþórum.

Blaðið La Repubblica segir að El Murena hafi ásamt tveimur vinum sínum ekið um götur Rómar að næturlagi á hrörlegum Subaru Impresa og leitað uppi unga menn á Ferrari- eða Porche-sportbílum sem litu út fyrir að vera til í kappakstur.

„Áætlunin var einföld,“ hefur blaðið eftir El Murena. „Ég stríddi þeim og fékk þá til að keppa við mig. Í níu af hverjum 10 tilfellum gengu þeir í gildruna og ég gekk síðan frá þeim í Impresunni minni. Á þriggja ára tímabili tapaði ég aldrei keppni,” bætti hann við en undir vélarhlíf Subarusins leyndist 500 hestafla vél.

Maðurinn, sem er 22 ára gamall, á yfir höfði sér ákærur fyrir að hafa ekið á gangandi vegfarendur, fjölda umferðarlagabrota og fyrir að veita fólki í hættu ekki aðstoð. Subaruinn hans hefur verið gerður upptækur.

kv, Dune<br><br>———————————–
clean desk is a sign of a sick mind
———————————–