Jahérna.

Ég er loksins búin að finna jeppa sem mig langar í!

Ég fór með vini mínum í hádeginu en hann er að spá í Range Rover 1997 módel 4.0 SE. Það er skemmst frá því að segja að bíllinn leit óaðfinnanlega út og var bara gullfallegur.

En það sem kom mér mest á óvart að það er bara þræl fínt að keyra þetta, hann er ótrúlega lipur með skarpt “turn in” fjaðrar frábærlega, hljóðlátur og fer ofboðslega vel með mann. Svo spillir ekki fyrir að hann virkar fínt með ekki stærri vél en þetta.

Nú er næsta mál á dagskrá að prófa 4.6 HSE og sjá hvort hann sé auka peninganna virði…

Allavega… ég er í fyrsta skipti hrifinn af jeppa! Merkilegt…. en auðvitað kýs ég frekar alvöru akstursbíla en ég gæti vel sætt mig við svona tæki.

Svo kostar þetta minna en Grandlooser!