Ég er með 4 stk gamlar 15" álfelgur sem mig langar
að gera fínar. Einhver sagði mér að ég gæti látið
glerblása þær og lakkað þær síðan. Hver gerir svona
hérna í Reykjavík (þ.e. glerblástur) og vitiði svona
ca. hvað það kostar?

Ég er ekki alveg tilbúinn að borga helling fyrir
þetta. Kannski svona örfáa þúsundkalla á stykkið

Kv.
Gústi