Það vantar eiginlega vettvang til að komast að hljóðum úr bílum. Ég á í fórum mér bók þar sem teknir er fyrir helstu bílarnir úr safni Nick Masons (bílanut, áhuga kappakstursökumaður og trommari Pink Floyd). Með henni fylgdi CD með frábærlega unnum hljóðum úr flestum bílanna, þetta er unun að hlusta á. Meðal bíla þarna eru t.d. kappakstursútfærsla af Ferrari Daytona, Lotus 18 (einn fyrsti MR F1 bíllinn) og margir bílar eins og kappakstursbílar frá Porsche og Ferrari. Sorglegt, ég veit, en ég myndi borga pening fyrir að fá að hlusta á upptöku af sándinu úr Porsche 911 2.8 RSR, óhljóðdeifðum!

Ég held að eina heimasíða fyrirtækis sem bíður upp á sánd úr bílunum sínum, rétt eins og myndir til að downloada sé síða Porsche. Ef þið vitið um fleiri góðar látið flakka… Það vantar eiginlega líka tenglakork..<BR