Jamm, enn einn pósturinn… Sorglegt, en þetta verður að koma fram. Eða þannig.

Frá hvaða landi koma flottustu bílarnir? Þetta er spurning til að gera mann geðveikan með. Mann langar til að segja Bretland, þaðan koma flestir bestu sportararnir og líka flottustu flekarnir. En svo kemur upp í huga manns Ferrari og maður verður allur mjúkur og svitnar í lófunum. Hmmm… Ég svindla, Ferrari er stofnun, hafin yfir landamæri. Ferrari verður kannski borinn saman við aðra bíla en Ferrari er alltaf… Ferrari og er náttúrulega einstakt fyrirbæri. Samvisku minni er bjargað.

P.S. Svo þið þurfið ekki að telja, þá kom orðið Ferrari fyrir fimm sinnum hér að ofan… Sex sinnum núna.<BR