Kveldið …

Jæja, þá er ég að spá í að reyna að selja bílinn minn …

Hann er semsagt:

Nissan Almera GTi árg '99
Ekinn 61 þús.
Litur er svartur.
Topplúga, ABS, Loftkæling.

Vélin er SR20de, 2000cm3, 16 ventla og twin-cam.
143 hestöfl.

Bíllinn var lækkaður af fyrri eiganda, veit ekki nákvæmlega um hvað mikið.
Á honum er “kitt” eða öllu heldur hliðarsvuntur frá Impetus.
Búið er að setja K&N svepp í staðinn fyrir original loftsíuboxið.

Ég er annar eigandi þessa bíls, búinn að eiga hann í tæp 3 ár.
Hann hefur frá upphafi farið í þjónustueftirlit samkvæmt smurbók og nú síðast í viðamikið 60.000 km check.

Þetta er alls ekki einhver útúrjaskaður GTi bíll, enda hef ég verið mjög latur við spyrnur og annað slíkt, og keyri víst venjulega eins og kerling :D Vona að það endurspegli ástand bílsins ….

Mjög stutt síðan skipt var um bremsuklossa að framan auk þess sem diskar voru renndir.

Held að ég geti sagt að þetta sé mjög gott eintak af frekar skemmtilegum og þægilegum bíl.

Myndi vilja eiga hann áfram, en nú tekur víst alvaran við … íbúðakaup o.þ.h

Myndir af bílnum má finna hér:
http://www.live2cruize.com/Members/Sidur/Haukur_Almera.htm

auk þessara (frekar slæm gæði):

http://www.mmedia.is/~hagur/almera1.jpg
http://www.mmedia.is/~hagur/almera2.jpg
http://www.mmedia.is/~hagur/almera3.jpg
http://www.mmedia.is/~hagur/almera4.jpg

Ásett verð er 1.290 þús.
Skoða skipti á ódýrari.

Vinsamlega sendið mér skilaboð hér á huga ef áhugi er fyrir hendi eða spurningar.