enn er fiflin í Reykjavik komin á stjá og enn verða bílarnir fyrir barðinu á þeim. Á fimmtudagsnótt í Stúfholti voru u.þ.b 6 bílar notaðir fyrir gangstétt. Það er, trampað var á þakinu og á húddinu. Tjónið er auðvitað nokkuð mikið og veit ég að tveir af þessum bílum voru nýjir. Hvernig er hægt að láta svona lagað detta sér í hug? Ekki er vitað hvaða fíll voru hér að verki en þetta verður án efa endurtekið einhvers staðar í Reykjavík! Hvet ég fólk að fara strax til lögreglunar ef það hefur einhverja vitneskju um svona heilalaus skemmtarverk.<br><br>Þegar vínvíman rennur af manni, þá rennur á hann óráð veruleikans.
________________________________________________