Langaði bara að benda á Reglurnar á þessu áhugamáli! Þetta tengist póstum sem hafa undanfarið komið Hingað inn.

1. Bannað er að pósta Bílnúmerum

2. Bannað er að vera með “einelti” á einhvern notanda og / eða fyrirtæki

3. Kynþáttahatur Er með öllu óheimilt

4. Bannað er að úthýða lögreglumönnum eða öðrum opinberum starfmönnum

5. Bannað er að auglýsa stolna vöru til sölu

6. Bannað er að hvetja til hraðakstur og annara umferðarlagabrota

7. Óheimilt er að auglýsa samkomu(r) Þar sem ólöglegur götukappakstur verður stundaður, Ef svo er gert munu Adminar áhugamálsins hafa samband við lögreglu og mun hún athæfast í málinu.