Djöfullinn maður, ég sem að var að verzla mér eina '59 Vettu á feitum slikkum. Verzlaði hana sko frá usa. Svo er maður náttúrulega með almennilega vél í húddinu svona 1 stk 588 hemi. Djöfuls læti í þessu kvikindi (flækjurnar ekki nógu góðar) knastásinn alveg að fara yfir um af hita. Að sjálfsögðu er svo Dana Hásing á kagganum. Maður þarf að vera með sólgleraugu þegar það er kveikt á ljósunum í skúrnum, það glampar svo af króminu. En meðan snjórinn er ennþá við völd verð ég að láta mér nægja að rúnta um á breytta hiluxnum mínum. um daginn spólaði ég svo mikið á honum að granninn skammaði mig síðar um daginn fyrir að sletta svo miklum snjó á framrúðuna á hondunni hans að hann kom of seint í vinnunna og var rekinn vegna þess hversu lengi hann var að skafa af helvítis dósinni. En hvað segiði mér fólk hvevær á maður að mæta á rúntinn?
spádómar?
ég fór einu sinni út á vettunni en hún eyðir svo skratti miklu að ég fór snemma heim.