Jæja þá er dellukarlinn Mark Evans loksins búinn að setja saman þyrluna sína og byrjaður á bílagrúski. Þetta eru frábærir þættir á Discovery þar sem bílhræ er gert upp frá a til ö.
Þáttaröðin byrjaði í gær og er ég búinn að missa af báðum þáttunum svo að ég veit ekki hvaða bíl hann gerir upp núna.

Miðað við skrif jonr og Moen í janúar þá er hann sennilega með Shelby-inn núna þar sem þættirnir með E-type Jagúarnum voru á undan þyrluþáttunum.

Samkvæmt syn.is (velja sjónvarpsdagskrá niðri hægra megin) er þátturinn sýndur kl.9:20 og 19:20-19:30. Sá reyndar lokin á þættinum áðan rétt fyrir kl.17(byrjar þá ca.16:30). Sennilega aðrir sýningartímar um helgar.

Á morgun byrjar hann leitina að einhverju hræi til að gera upp.<br><br>Nil Satis Nisi Optimum