Jæja, ég sem hélt ég væri búin að selja bílinn. Salan datt upp fyrir og því vantar bílinn minn nýjann eiganda - ég auglýsti hann síðast hér fyrir um tveimur mánuðum.

Ég er búin að kaupa íbúð og fluttur og verð að selja. Verðið er 1300 þúsund fyrir góðan bíl og ég skoða öll skipti á ódýrari eða sparibaukum.

Hann er ekinn 144 þúsund, svartur, svart buffalaleður, hraðastillir, sími, sjálfvirk miðstöð og 17" BBS felgur. Óbreyttur - ótjónaður - góð eigendasaga og staðfest kílómetratala.

EN, að gefnu tilefni vegna þess að bíllinn er skuldlaus þá vil ég láta vita af því að það er ekki hægt að fá bílalán á svona gamla bíla og því þurfa menn að eiga pening, geta tekið lán með veði eða eiga skuldlausann bíl til að setja uppí.

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda mér skilaboð.

Kveðja,
Bebecar