Ég var að horfa á WRC á einhverri norðurlandarásinni í kvöld. Citroen var með 3 efstu sætin í áskrift og lið eins og Ford, Peugout og Skoda voru áberandi. Ég hins vegar fór að veita því meir meir athygli að það var eins og að það vantadi Subaru. Subaru eru víst með ekkert stig eftir þessa keppni.
Ég var bara að spá hvort að einhverjir mér vitrari menn gætu útskýrt þetta fyrir mér. T.d. Hvað er að hjá Subaru? Hentuðu kannski bara aðstæður ekki fyrir bílinn (ís, snjór og mikið af málbiki og allt til skiptis)?

Annað kannski ekki að það skipti einhverju en afhverju fara ekki aðrir framleiðendur í meiri samkeppni við Subaru GT eða WRC bílana. Þessir bílar njóta gríarlegrar athygli í bílablöðum ásamt því að ég held að allir beri ákveðna virðingu fyrir þessum bílum. Einfaldlega vegna þess að þeir krefjast hennar. Mit. Evo 7 er dæmi um svona bíl en þessir bílar eru að mínu viti bara ekki til hér á götum en samt er þessi bíll alltaf borinn saman við Sub.sti . Hvar eru Peugout RS WRC eða Ford RC eða hvað þetta heitir allt?