Sælir Hugarar.

Ég er að skoða bíl núna sem er með Chevy 350 vél og 4ra hólfa blöndung.
Nú veit ég nánast ekkert um Ameríkubíla/vélar svo mig langar aðeins að fræðast
um þessa vél.

Það sem mér dettur fyrst í hug að spurja er kraftur/tog, möguleika á tjúningum,
er vit í að fá innspýtingu á þetta, hvaða verkstæði sörvisera svona græjur.

Öll önnur komment á hana vel þegin.