Sælir bílahugarar!

Ég er mikið að velta fyrir mér að breyta korkunum hér á áhugamálinu. Upp á síðskastið hefur allt ætlað um koll að keyra á almenna korknum (þessum hér, Umræður um bíla) og umræður sem eru varla að lognast út af hafa dottið út af fyrstu bls.

Aksturshermakorkurinn er aftur á móti steindauður og því væri ég til í að fórna honum fyrir nýjan kork sem væri þá vonandi líf í og gæti létt aðeins á Umræðu um bíla korkinum.

Ein hugmyndin er að fá nýjan kork sem myndi heita “Spurt og svarað” eða eitthvað í þá áttina, enda eru oft miklar umræður í kringum þessháttar pósta.

Hvað finnst ykkur? Allar hugmyndir vel þegnar.

Kveðja,
Mal3 - umsjónarmaður á bílaáhugamáli<br><br>Viltu lesa meira af <a href="http://thisgeeksworld.blogspot.com“target=”blank">nöldrinu</a> mínu?

* FIRST I MUST SPRINKLE YOU WITH FAIRY DUST *