Eftir hádegi í dag átti ég leið um Dalveginn í Kópavogi og mætti leigubíl sem blikkaði framljósunum. Ég vissi ekki alveg hvað málið var enda með kveikt á ljósunum. Ca. 100 metrum seinna mæti ég löggunni þar sem hún beið í vígahug við Sorpu, radarvarinn steinþagði svo að þeir voru í ekta löggu og bófaleik með radarinn.
Þakka ég tillitsemina hjá leigubílstjóranum og hvet aðra ökumenn til að venja sig á þennan greiða.<br><br><i>Nil Satis Nisi Optimum</i