Jæja, í annað skiptið mun Bílabúð Benna standa fyrir græjukeppninni sem ber titilinn “Friday the 13th”. Föstudaginn 13. desember verðum við hjá Benna með SPL hávaðakeppni, og mun þátttaka vera frí.
Vegna geysilega mikilla þátttöku seinast, ætlum við að hefja skráningu strax föstudaginn 6. des. og seinasti séns að skrá sig 13. des. fyrir kl 18.00.
Samkoman hefst kl. 20.00 og verður svona framm að miðnæti, að sjálfsögðu að Vagnhöfða 23, til húsa Bílabúðar Benna.

Við erum að vinna að fleiri uppákomum og betiri skipulagningu en það verður allt auglýst nánar fljótlega.

Vegna þess hvað margir bílar voru á planinu seinast ætlum við að hafa það lokað allri umferð, en þátttakendur SPL leggja sínum bílum þar.
Fólk sem mætir hins vegar á flottum og HREINUM bílum fá að posa sínum á planinu, sem svona “sýningargripi”.

Við höfum lagt höfuðið í bleiti til þess að höfða til allra og verða komin lokasvör hvað verður nákvæmlega að gerast strax eftir helgi.

Vonumst eftir góðri mætingu og þið sem eigið flotta bíla, endilega mætið á þeim á svæðið, þú líka bebecar.

kv., Garri
Bílabúð Benna