Rally, mælikvarði á bíla? Í umræðunni um Amerískt vs. Þýskt hérna þá sá ég mikið rifist um bíla eins og Viper, Camaro og fleiri svona macho ameríska bíla. Ég er meira hrifinn af evrópsku týpunum, finnst alltaf að það þurfi meira en bara hestöfl til að gera alvöru bíl. Svo ég fór að pæla, hvar er þar sem virkilega reynir á eiginleika bíla, ekki bara afl? Þar sem þarf að fara saman kraftur, grip, snerpa og allt hitt. Jú er það ekki rally? Þarna eru menn að keyra á 100+ km hraða, í snjó og drullu, sandi og bleytu, og á malbiki. Ég er ansi hræddur um að hvorki Viper eða SLK kæmust langt í svona. En það er annað sem ég tók eftir, þetta eru alltaf sömu bílarnir sem eru í topp sætunum, Peugeot 206, Ford Focus (Kemur sterkur inn), Subaru Impreza (Kemur svo sem ekki á óvart), Hyundai Accent (WTF, kannski maður sé að vanmetea Hyundai?) Svo eru þarna bílar eins og MMC Lancer/Carisma og Toyota Corolla.
En 206, Focus og Impreza virðast vera ráðandi í dag, tilviljun eða hvað?
NB, ég veit að þessir bílar eru ekki alveg sambærilegir við þá bíla sem við fáum hérna út úr umboðunum, en eitthvað hljóta þeir að hafa.

J.