Hvernig væri það nú, kæru samhugendur, að við myndum slá upp samkomu eða einhversskonar hátið í sumar. Mæta þarna á bílunum okkar, eða bara mæta :), og hafa það gott, með tærnar uppí loft. Ég var að hugsa um að það væri gaman að hittast á Þingvöllum, eða í þjógarðinum(undir Vatnajökli) eða hvar sem er. Við gætum sameinað þetta undir Mótorsport liðinu til að hafa smá fjölda, eða bara talað við aðstandendur Huga.is um að halda einhversskonar samkomu í sumar. Ég hef heyrt að svona hópar sem hittast á netinu, komi saman einhversstaðar á landi og það sé bara helvíti gaman.

Endilega replyið hvað ykkur finnst, og reynum að sína smá jákvæðni ;)

Kveðja,
mystic
nossinyer // caid