Þegar ég las grein bebecar um bestu bílana datt mér í hug að halda smá könnun. Hvernig væri að Hugarar settu hver saman lista með tíu bílum og gæfi þannig hverjum þeirra eitt atkvæði sem besta bíl fyrr og síðar.

Það eru náttúrulegar engar reglur en endilega hugsið ykkur vel um og reynið að taka könnunina alvarlega ef þið ætlið að taka þátt. Undirritaður áskilur sér og öðrum skráðum admins áhugamálsins allan rétt til að sniðganga val, kalla líkar gerðir sama bíl og svo framvegis.

Skilafrestur í könnunina er sunnudagurinn 28. október. Setjið ykkar val inn hér að neðan sem svar. Þetta er semsagt opin kosning og frjálst er að ræða valið.