Cyprus Rally 2001 FIA hefur nú gefið út lista yfir þá keppendur sem munu keppa fyrir hönd bílaframleiðenda í Cyprus Rally 2001 sem fer fram, eins og nafnið bendir til, á Kýpur 1-3 júní nk. Peugeot, Ford og Subaru mæta með 3 bíla eins og venjulega en athygli vekur að Mitsubishi og Hyundai mæta nú með 3 bíla í fyrsta skiptið.3 ökumaður Mitsubishi heitir Katsuhiko Taguchi og er frá Japan en aðstoðarökumaður hans sem heitir Derek Ringer er fyrrum aðstoðarökumaður Colin McRae sem nú ekur fyrir Ford og ætti hann því að kunna öll trixin í bókinni. Skoda mætir með 2 bíla eins og þeir hafa gert undanfarið.

Hér er svo listi yfir keppendurnar:

PEUGEOT SPORT:
Marcus GRONHOLM
Didier AURIOL
Harri ROVANPERA

FORD MOTOR CO:
Carlos SAINZ
Colin McRAE
François DELECOUR

SUBARU WORLD RALLY TEAM:
Richard BURNS
Petter SOLBERG
Toshihiro ARAI

MITSUBISHI RALLIART:
Tommi MAKINEN
Freddy LOIX
Katsuhiko TAGUCHI

HYUNDAI WORLD RALLY TEAM:
Kenneth ERIKSSON
Alister McRAE
Piero LIATTI

SKODA MOTORSPORT:
Armin SCHWARZ
Bruno THIRY