Kappakstri tveggja bifreiða á Glerárgötu á Akureyri í gærkvöld lauk með því að annarri bifreiðinni var ekið á móti rauðu ljósi á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu og lenti þar í árekstri.

Lögreglan mældi hraða bifreiðanna í kappakstrinum og gaf þeim merki um að stöðva. Því var ekki sinnt og tókst ökumanni annarrar bifreiðarinnar að komast undan en hinum tókst að lenda í árekstrinum með því að aka gegn rauðu ljósi sem fyrr sagði. Lögreglan leitar ökumannsins sem komst undan.